Frétt

20. 03 2017

Blóðgjöf í 200 skipti í fyrsta sinn á Íslandi

Í dag 20.mars gerist það í fyrsta skipti í Blóðbankanum að einn og sami blóðgjafi nær því marki að gefa 200 sinnum blóð.  Hann hefur gefið um 90 lítra af blóði og má gera ráð fyrir að hann hafi hjálpað milli tvö og þrjú hundruð manns með gjöfum sínum. Ef hver blóðgjöf tekur að meðaltali um 30 mínútur hefur hann varið að minnsta kosti 100 klukkustundum í Blóðbankanum. Þetta er ómetanlegt framlag.

Ólafur Helgi Kjartansson er blóðgjafinn sem nær þessu markmiði í dag kl.11, þegar hann kemur og gefur blóð í tvö hundruðasta sinn.

Ólafur Helgi gaf blóð í fyrsta sinn á síðasta ári sínu í Menntaskólanum í Reykjavík þann 19. mars 1972, þá 18 ára gamall. Síðan hefur hann gefið blóð reglulega og oft haft mikið fyrir því að komast í blóðgjöf. Ólafur var um tíma blóðflögugjafi og kom þá í blóðskiljuvél reglulega.  Eftir það hefur ferillinn verið nokkuð samfelldur og það þrátt fyrir 18 ára búsetu á Ísafirði, en allar Reykjavíkurferðir voru skipulagðar þannig að nauðsynleg erindi bæði vegna starfa og setu í bæjarstjórn og bæjarráði fellu saman við blóðgjöf nokkurn veginn á þriggja mánaða fresti.

Árið 2002 var Ólafur Helgi kosinn í stjórn Blóðgjafafélags Íslands og tveimur árum síðar sem formaður og gegndi því hlutverki í 10 ár, til ársins 2014.  Auk þess að vera einn af okkar dyggustu blóðgjöfum hafa fáir komist með tærnar þar sem Ólafur hefur hælana varðandi öflun blóðgjafa. Meðan Ólafur bjó á Selfossi virkjaði hann fjöldann allann af fólki til að verða blóðgjafar og voru oft slegin met við blóðsöfnun þar. Eftir að Ólafur svo fluttist á Suðurnesin hafa þau styrkst og eflst sem blóðsöfnunarstaður og er nú svo komið að fjöldi þeirra sem koma í bílinn í Reykjanesbæ er oft fleiri en á Selfossi. Svona getur einn einstaklingur skipt miklu máli þegar blóðsöfnun er annars vegar. Við þurfum fleiri Ólafa J

Blóðbankinn mun heiðra Ólaf sérstaklega að blóðgjöf lokinni í dag, um kl.11:15.


Til baka
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Advania