Frétt
Blóðsöfnun á austurlandi í fyrsta skipti um áratugaskeið !
Loksins loksins!
Blóðbankinn verður með blóðsöfnun á austfjörðum á miðvikudag.
Blóðbankinn hefur ekki safnað blóði á austfjörðum um áratugaskeið og hafa margir austfirðingar óskað að þeir gætu gefið blóð í heimabyggð.
Nú er tækifæri til að sýna hug sinn í verki og koma í blóðgjöf.
Blóðsöfnunin verður hjá Alcoa miðvikudaginn 28. sept. frá kl. 08:30-11:30
og á heilsugæslustöðinni á Egilstöðum 1. hæð frá kl. 14:00-16:30.
Blóðbankinn hvetur austfirðinga til að bregðast vel við svo hægt verði að halda áfram að fara reglulega með blóðsöfnun á austurland.
Til baka