Frétt
Blóðbankinn opnar nýja blóðsöfnun í verslunarmiðstöðinni Glerártorgi
Opnunarhátíð verður fimmtudaginn 8.febrúar kl.16:00 - 18:00 með veglegri dagskrá.
-
16:00 Tónlist
Anna Garðarsdóttir, fiðluleikari
Þorbjörg Edda Björnsdóttir, söngkona -
16:30 Ávarp
Alma D. Möller - framkvæmdastjóri aðgerðarsviðs Landspítala
Sveinn Guðmundsson - yfirlæknir Blóðbankans -
16:50 Velunnarar heiðraðir
Lionsklúbburinn Hængur
Hollvinasamtök SAk
Kælismiðjan Frost
Bakaríið við Brúna -
17:00 Uppboð! Tryggvi Gunnarsson, blóðgjafi stýrir
Boðnir verða upp gömlu blóðsöfnunarbekkirnir. Bekkirnir munu sóma sér vel í hvaða stofu sem er enda um sannkallaða antík að ræða og leitun að betri legubekkjum.
Margir hafa borið víurnar í stólana í gegnum tíðina og var því ákveðið að fara þessa leið. Stólarnir eru rafdrifnir þrátt fyrir að vera orðnir yfir 30ára gamlir. Alger gersemi! -
17:15 Magni Ásgeirsson syngur nokkur lög
Veitingar, hoppukastali, blöðrur og fleira.
Blóðsöfnun fyrir norður- og austurland er staðsett á Akureyri. Blóðsöfnun Blóðbankans á Akureyri hefur um langt árabil verið staðsett í húsnæði sjúkrahússins á Akureyri. Verið þar í kjallara tengt rannsóknadeild sjúkrahússins.
Með því að flytja blóðsöfnunina í glænýtt húsnæði í verslunarmiðstöðinni Glerártorgi er Blóðbankinn að brjóta blað í sögu Blóðbankans og færa blóðsöfnun nær fólkinu, til framtíðar. Blóðsöfnunin er staðsett á annarri hæð á Glerártorgi milli læknastofanna og tannlæknastofanna. Öll aðstaða er eins og best verður á kosið og aðgengi afar gott.
Til að mæta þörfum blóðgjafa enn frekar, er nú opið í blóðsöfnun til 18:30 á fimmtudögum. Með þessu vonumst við til að ná betur til blóðgjafa um allt norður- og austurland. Kannanir sýna að stór hluti fólks á norður- og austurlandi kemur einu sinni í mánuði eða oftar í Glerártorg.
Til baka