Frétt
Gjafabréf frá Burro - bókaðir blóðgjafar lenda í potti
Við viljum hvetja blóðgjafa til að bóka tíma í blóðgjöf, það auðveldar okkur að veita góða þjónustu og tryggir að blóðgjafi þurfi ekki að bíða óvenju lengi þegar komið er í blóðgjöf.
Veitingastaðurinn Burro styrkir okkur með því að gefa eitt gjafabréf á mánuði, óvissuferð í mat fyrir tvo.
Við drögum einn blóðgjafa út í hverjum mánuði, höfum samband við hann símleiðis og segjum honum frá því. Einungis blóðgjafar sem hafa bókað tíma í blóðgjöf lenda í pottinum.
Síðan í ágúst hafa eftirfarandi blóðgjafar verið dregnir út:
ágúst - Steinar Valur Steinarsson
september - Viðar Þorgeirsson
október - Unnar Freyr Bjarnason
Það getur borgað sig að bóka!
Blóðgjöf er góð gjöf.