Dagbókarfærsla

Afmælisboð Blóðbankans

Hefst þann 28.11.2018 kl.  14:30


Blóðbankinn heldur upp á 65 ára afmæli sitt í nóvember 2018. 
Allt frá árinu 1953 hefur Blóðbankinn þjónað sjúklingum með dyggri aðstoð íslenskra blóðgjafa.

Af þessu tilefni heldur starfsfólk Blóðbankans örlítið afmælisboð.


Kynnt verða nokkur samstarfsverkefni starfsfólks Blóðbankans með öðrum heilbrigðisstarfsmönnum s.s. Rhesusvarnir, eigin stofnfrumumeðferð og vefjaflokkanir fyrir líffæraígræðslur o.fl. auk kynningar starfsmanna á blóðgjafahópnum og starfsemi Blóðbankabílsins. Einnig verður gerð grein fyrir öflugu gæðastarfi Blóðbankans.


Að þessum erindum loknum um kl. 16:00 verða kaffiveitingar.


Afmælisboðið er öllum opið. Verið velkomin!!!

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Advania