Fara beint í efnið
Blóðbankinn Forsíða
Blóðbankinn Forsíða

Blóðbankinn

Panta tíma í blóðgjöf

Hægt er að stytta biðtímann með því að bóka tíma í blóðgjöf. Nýir blóðgjafar geta einnig bókað tíma í fyrstu heimsókn. Þú getur bókað tíma með því að:

  • hringja í Blóðbankann Snorrabraut sími: 543 5500

  • hringja í Blóðbankann Akureyri sími: 543 5560

  • fylla út formið, við höfum samband til að klára tímabókunina

Blóðbankinn minnir þig á bókaðan tíma með sms skilaboði. 

Ef þú ert óviss hvort þú megir gefa blóð vegna nýlegra veikinda, sjúkdóma, lyfja eða annars slíkt getur þú kíkt á leiðbeiningar um hvenær má gefa blóð áður en þú pantar tíma.

Beiðni um tímabókun

Hefur þú gefið blóð áður?

Nýir blóðgjafar: Við fyrstu komu er sýnataka, farið yfir heilsufarssögu og tekinn blóðþrýstingur. Eftir 2-3 vikur er hægt að koma aftur og gefa blóð.

Fyrsta blóðgjöf: Við mælum með því að bóka ekki mjög snemma að morgni, þar sem mikilvægt er að borða góða máltíð og drekka vel um tveimur klukkustundum fyrir fyrstu blóðgjöf.