Kæru blóðgjafar
Eins og við vitum öll þá hefur smitum í samfélaginu fjölgað og við höfum þurft að afbóka marga blóðgjafa sl. daga og setur það okkur í mjög slæma stöðu. Við biðjum því ALLA HRAUSTA blóðgjafa sem mögulega geta komið og gefið blóð að panta tíma því ENN er mikil notkun á blóði. Opnunartími fimmtudaginn 30.desember kl. 10-17
Tímabókanir í síma: 543-5560
Eins og fyrir jólin þurfum við að hafa góða lagerstöðu og ÞÚ getur hjálpað til ef þú ert virkur blóðgjafi og ert frískur !!
Á morgun fimmtudag er síðasti dagurinn á þessu ári sem við söfnum blóði og það er opið bæði á Snorrabraut og Glerártorgi.
Snorrabraut
Opnunartími fimmtudaginn 30.desember kl. 8-19
Tímabókanir í síma: 543-5500
Glerártorg