Þann 9. febrúar verður blóðsöfnunardagur Blóðbankans og Neistans.
Það er ótrúlega mikilvægt að Blóðbankinn sé vel byrgður og viljum við
leggja okkar af mörkum og hvetja alla okkar félagsmenn,
og auðvitað alla sem tök hafa á, til að flykkjast í Blóðbankann og gefa blóð!
Opnunartími á Snorrabraut í er frá 8:00-19:00 og á Glerártorgi, Akureyri frá 10:00-17:00
Neistinn verður á staðnum á Snorrabraut og hlakkar til að taka á móti blóðgjöfum.
Taktur - félag fullorðinna með meðfædda hjartagalla